Fótbolti

Adebayor rekinn úr landsliðinu

Knattspyrnusamband Togo hefur tekið þá ákvörðun að reka Emmanuel Adebayor, framherja Arsenal og langbesta leikmann liðsins, og tvö aðra leikmenn vegna deilu þeirra við knattspyrnuyfirvöld landsins um bónusgreiðslur sem þeir telja sig eiga rétt á. Adebayor hafði hótað að hætta að spila fyrir landsliðið vegna málsins en nú hefur ákvörðunin verið tekin fyrir hann.

Ákvörðunin var tekin eftir sigur Togo á Sierra Leone í Afríkukeppninni á laugardag og segir Zep Kuete, yfirmaður knattspyrnusambands Togo, að framkoma leikmannana þriggja hafi verið ólíðandi.

Adebayor hafði fengið líflátshótanir fyrir leikinn gegn Sierra Leone þar sem honum var skipað að spila, ellegar fjölskylda hans myndi hljóta verra af. Adebayor spilaði leikinn og skoraði tvö mörk en greindi opinberlega frá hótununum eftir leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×