Sýknaður af ákæru um kynferðisbrot vegna aldurs 21. febrúar 2007 11:40
Héraðsdómur Vesturlands sýknaði í gær ungan mann af kynferðisbroti gegn stúlkubarni á þeim grundvelli að hann væri ósakhæfur fyrir aldurs sakir. Ákæran á hendur manninum var í tveimur liðum, annars vegar fyrir kynferðisbrot og hins vegar líkamsárás. Í fyrri ákæruliðnum var manninum gefið að sök að hafa brotið gegn stúlku á sjötta ári stúlku á sveitabæ sumarið 2004 með því að segja henni að loka augunum og opna munninn en um leið stakk hann getnaðarlim sínum upp í munninn á henni. Í kjölfarið bannaði hann stúlkunni að segja frá þessu því annars myndi hann fara í fangelsi. Stúlkan greindi hins vegar frá þessu í fyrra og viðurkenndi maðurinn fyrir dómi að hafa stungið lim sínum upp í hana. Dómurinn komst hins vegar að þeirri niðurstöðu út frá framburði ákærða og stúlkunnar að brotið hefði átt sér stað sumarið 2003 en ekki sumarið 2004 og því hefði ungi maðurinn verið 14 ára en ekki 15 og því teldist hann ósakhæfur sökum aldurs. Var hann því sýknaður. Hins vegar var hann dæmdur til að greiða stúlkunni 300 þúsund krónur í miskabætur vegna verknaðarins sem dómurinn segir mjög alvarlegan og eigi eftir að hafa rík áhrif á líf stúlkunnar. Með þessu hafi ákærði einnig brugðist trausti stúlkunnar og neytt yfirburða sinna gagnvart henni. Seinni ákæruliðurinn laut að líkamsárás mannsins á hendur öðrum manni á dansleik í Borgarnesi árið 2005. Dómnum þótti sannað að ungi maðurinn hefði kýlt hinn á dansleiknum og sakfelldi hann því fyrir líkamsárás. Í ljósi þess að brotaþolinn átti upptökin að átökunum og með hliðsjón af ungum aldri ákærða var refsing hins vegar látin niður falla.
Mest lesið Davos-vaktin: Beðið eftir ræðu Trumps Erlent Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Innlent Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Innlent Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara Innlent Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Erlent „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Innlent Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Erlent Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Innlent Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Eldræða Carney: „Ef þú ert ekki við borðið þá ertu á matseðlinum“ Erlent Fleiri fréttir Með 29 kíló af maríjúana í töskunum Brúnni yfir Helluvatn lokað í fimm vikur Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Milljarða útspil meirihlutans „fullkomlega ábyrgðarlaust“ og lykti af prófkjörsbaráttu Ákærður fyrir nauðgun á nýársdag Markverð tíðindi í nýrri Maskínukönnun um fylgið á landsvísu Hátt í tíu þúsund manns án atvinnu í desember Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Annasamasti dagur á bráðamóttöku í lækna minnum Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Gríðarleg fjölgun hótana og dæmi um að setið sé fyrir lögreglumönnum Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Sjá meira