Bresk börn hafa það verst 14. febrúar 2007 10:24 Íslensk börn hafa það nokkuð gott
Lífsgæði barna í iðnvæddum ríkjum eru minnst í Bretlandi. Þetta kemur fram í skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF sem kom út í dag. Skýrslan tekur til 40 þátta er varða lífsgæði barna í 21 iðnvæddu ríki og er fyrsta rannsókn sinnar tegundar. Bresk börn eru langt undir meðaltali þegar kemur að fjölda sem býr undir fátæktarmörkum og er heilsufar þeirra verra. Einnig hefur mikið að segja hversu eiturlyfjaneysla er algeng meðal breskra barna. Hvað varðar menntun eru bresku börnin eilítið betur sett en þau voru hinsvegar í botnsætinu á öllum öðrum sviðum rannsóknarinnar. Bandarísk börn hafa það næst verst barna í iðnvæddum ríkjum. Löndin sem best komu út úr rannsókninni voru Holland, Svíþjóð og Danmörk. Samkvæmt skýrslunni eru engin skýr tengsl á mili þess hversu ríkar þjóðir eru og hvernig þau sinna börnunum sínum. Til dæmis kemur Tékkland talsvert betur út en Frakkland, þó að Frakkland sé talsvert ríkari þjóð.Íslensk börn utangarðsÍsland kemur vel út úr skýrslunni hvað varðar heilsufar barna, en aðeins er hugað betur að barnaheilsu í Svíþjóð. Þegar kemur að menntun stendur Ísland sig meðalvel, verr en Belgía, Kanada, Pólland og fleiri lönd. Athygli vekur að mun fleiri börn telja sig utangarðs í samfélaginu á Íslandi en að meðaltali í iðnvæddum ríkjum, 10% á meðan meðaltalið er nær 5%.Hólmfríður Anna Baldursdóttir upplýsingafulltrúi UNICEF á Íslandi verður í Hádegisviðtalinu á Stöð 2 og mun þar ræða helstu niðurstöður skýrslunnar.Hér fyrir neðan má sjá skýrsluna í heild sinni á ensku á pdf-formi.
Mest lesið Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Innlent Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Erlent Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Innlent Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Innlent Fleiri fréttir Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Sjá meira