Á fleygiferð í bíl í Illum 29. janúar 2007 12:41
Stórverslunin Illum á Strikinu í Kaupmannahöfn hefur eflaust líkst tökustað kvikmyndar í gærkvöld þegar tveir menn óku bifreið inn í verslunina og reyndu að ræna skartgripadeildina þar. Eftir því sem fram kemur á vef Berlingske Tidende óku mennirnir inn í gegnum einn innganginn að Illum á lítilli Mözdu snemma í gærkvöldi og reyndu að brjóta upp skartgripageymslu. Það tókst hins vegar ekki og stukku því mennirnir aftur upp í bílinn og héldu ferð sinni áfram um verslunina. Þeir óku svo á endanum í gegnum rúðu í hinum enda Illum þar sem bíllinn endaði á Hauser-torgi. Hlupu mennirnir þá upp í annan bíl og hurfu á braut. Lögregla undrar sig á því hvers vegna mennirnir hafi reynt að ræna verslunina svo snemma kvölds en fjölmörg vitni urðu að atburðinum. Hins vegar gæti reynst erfitt að hafa upp á mönnunum þar sem þeir voru grímuklæddir.
Mest lesið Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Innlent „Þetta er ekki alveg óvænt“ Innlent Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti Innlent Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Fleiri fréttir Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Sjá meira