Erlent

Bandarískur táningur gengur berserksgang

MYND/Vísir

Sextán ára bandarískur drengur, vopnaður miðaldasverði, myrti móður sína og særði systur sína og vin hennar. Atvikið átti sér stað á heimili drengsins. Þegar lögreglu bar að garði réðist hann að einum lögregluþjóninum með sverðið á lofti og tókst að særa hann.

Hinir lögreglumennirnir á staðnum skutu þá á drenginn og lést hann síðar af sárum sínum. Þegar lögrregla fór inn í húsið fann hún systur hans og erlendan skiptinema og voru þau bæði slösuð. Lögreglumennirnir sem skutu á drenginn voru settir í starfsleyfi á meðan lát drengsins er rannsakað.

Fréttavefur Sky News skýrði frá þessu í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×