Erlent

Spánverjar taka mál af 8 þúsund konum

Þessi fyrirsæta ætti líklega ekki í vandræðum með að finna réttu stærðina á sig í tískuverslun, en margar konur fá ekki föt í sinni stærð, þótt þær séu ósköp venjulegar.
Þessi fyrirsæta ætti líklega ekki í vandræðum með að finna réttu stærðina á sig í tískuverslun, en margar konur fá ekki föt í sinni stærð, þótt þær séu ósköp venjulegar. MYND/Getty Images

Fatastærðir fyrir konur eru nú teknar til endurskoðunar á Spáni eftir að ríkisstjórnin ákvað að sporna við ímyndarþrýstingi á ungar stúlkur. Ein af breytingunum verður sú að búðareigendur eiga að stylla út breiðari gínum. Nokkrir mánuðir eru síðan sett var bann við of grönnum fyrirsætum á tískuvikunni í Madrid.

Á Spáni er ekki óalgengt að konur fari með margar stærðir af sömu flíkinni inn í búningsherbergi, þar sem ómögulegt er að vita fyrirfram hvaða stærð þær þurfi.

Til að finna út raunverulegar stærðir spænskra kvenna munu spænsku neytendasamtökin taka mál af meira en 8,000 konum á aldrinum 12-70 ára. Ríkisstjórnin áformar að fyrir næsta ár verði nýr staðall fyrir fatastærðir kominn í gagnið.

Stærstu tískuverslanirnar hafa þegar samþykkt að rýmka stærðirnar fyrir vaxandi fólksfjölda á Spáni og munu breytingarnar hafa áhrif víðar þar sem alþjóðlegar tískukeðjur eins og Zara og Magno eru í hópi þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×