Erlent

Fjöldaárekstur á hraðbraut í Danmörku

Hraðbrautinni við Köge, sem er suður af Kaupmannahöfn, hefur verið lokað vegna fjöldaáreksturs á veginum. Eftir því sem danskir vefmiðlar greina frá rákust á bilinu 50 til 100 bílar saman í röð óhappa og hefur fjöldi sjúkrabíla verið sendur á vettvang. Haft er eftir lögreglu að ringulreið ríki á staðnum en ekki liggur fyrir hversu margir hafi slasast. Mikil hálka er á þeim slóðum þar sem fjöldaáreksturinn varð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×