Erlent

66 manns saknað eftir ferjuslys á Indlandi

Óttast er um 66 manns á Suður-Indlandi eftir að ferja sökk á leið sinni yfir stórfljót. Fólkið var flest á leið heim frá fjölmennri pílagrímshátíð við ána Ganges. Kafarar og þyrlur hafa hjálpað til við leitina í dag en leit hefur verið frestað vegna myrkurs. Áfram verður leitað á morgun.

Báturinn var aðeins 100 metra frá bakkanum en áin er djúp þar sem hann hvarf í strauminn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×