Erlent

Olíutunnan niður fyrir 50 dollara í fyrsta skipti í 19 mánuði

MYND/Reuters
Verðið á hráolíu hrapaði niður fyrir 50 dollara á tunnuna í gær í fyrsta skipti í 19 mánuði. Verðið hrundi eftir skýrslu sem sýndi að Bandaríkjamenn eiga miklar olíubirgðir á lager.

Lítið hefur verið notað af olíu í vetur þar sem veðurfar hefur verið óvenju hlýtt og ekki hefur þurft að kynda í líkingu við fyrri ár. Í skýrslunni kemur fram að hráolíuforðinn hefur aukist um 6,8 milljónir tunna, sem er langt umfram þær 100 þúsund tunnur sem búist var við að myndu bætast við. Þá fjölgaði bensíntunnunum um 3,5 milljónir. Þrátt fyrir þessar verðlækkanir á alþjóðamarkaði virðist sem þær séu ekki að skila sér til neytenda.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×