Erlent

Flugstöð á Tenerife rýmd vegna elds

Frá Tenerife.
Frá Tenerife.

Flugstöðin á sunnanverðri Tenerife-eyju var rýmd í dag vegna elds sem upp kom í loftræstikerfi. Reykur barst fljótt um alla stöðina og þurftu þrjú þúsund manns að yfirgefa hana.

Engan sakaði en flugvélum meðal annars frá Hamborg, Düsseldorf og Brussel sem lenda áttu á vellinum var beint til nágrannaeyjarinnar Gran Canaria. Um tveimur klukkustundum eftir atvikið var flugstöðin opnuð aftur og að sögn flugvallaryfirvalda verða aðeins litlar tafir á flugumferð. Tenerife tilheyrir Kanaríeyjum og er meðal annars vinsæll áfangastaður sólþyrstra Íslendinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×