Erlent

Fuglaflensa greinist í ungri konu í Egyptalandi

MYND/AP

Nýtt tilvik fuglaflensu hefur greinst í manneskju í Egyptalandi en um er að ræða 27 ára gamla konu sem býr í héraði suður af höfuðborginni Kaíró.

Eftir því sem fréttastofan MENA í Miðausturlöndum greinir frá veiktist konan um helgina og hafa rannsóknir leitt í ljós að hún er smituð af H5N1-veiru fuglaflensunnar sem getur dregið menn til dauða. Tíu manns hafa látist og átta aðrir smitast í Egyptalandi frá því að veikinnar varð fyrst vart í alifuglum landinu fyrir tæpu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×