Erlent

Prodi samþykkir herstöðvarstækkun

Ítalir eru samþykkir því að Bandaríkjamenn stækki eina stærstu herstöð sína í Evrópu. Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, tilkynnti þetta í dag. Skiptar skoðanir hafa verið innan samsteypustjórnar vinstri- og miðjumanna um áætlanir Bandaríkjamanna.

Fyrrverandi ríkisstjórn Silvios Berlusconis og bæjarstjórnin í Vicenza á Ítalíu, þar sem herstöðin er, höfðu samþykkt áætlun Bandaríkjamanna. Núverandi stjórn var á hinn bóginn ekki jafnhrifin af fyrirætlununum. Prodi tók hins vegar af allan vafa í dag þegar hann sagði að stjórnin ætlaði ekki að setja sig upp á móti stækkuninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×