Erlent

30 látnir í vetrarveðri í Bandaríkjunum

Snjór á þökum í Oklahoma.
Snjór á þökum í Oklahoma. MYND/AP

Kuldi og ísregn hafa orðið 30 manns að bana í miðríkjum Bandaríkjanna. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir og þjóðvarðliðar kvaddir til Missouri, þar sem 200 þúsund heimili eru rafmagnslaus.

Ísregn fellur þegar rignir við mjög lágt hitastig og regndroparnir frjósa nánast um leið og þeir lenda. Þannig getur myndast þykkt íslag.

Snarpar vindhviður hafa fellt um koll tré, umferðarljós og rafmagnsstaura. Þá er varasamt að vera á ferli, sérstaklega í Missouri og Oklahoma, sem hafa orðið verst úti. Einnig hefur fólk látist vegna vetrarveðursins í Iowa, Texas, New York og Maine.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×