Erlent

Ráðherrann vildi lögregluskutl heim af barnum

Hans Enoksen, formaður heimastjórnar Grænlands, segir óeðlilegt að flokksbróðir sinn, Tommy Marø, krefjist þess að lögreglumenn keyrðu sig heim af barnum. Marø, sem er mennta- og kirkjumálaráðherra í heimastjórninni, bankaði upp á hjá lögreglunni í Nuuk eftir jólahlaðborð í desember og bað um að vera keyrður heim til sín.

Samkvæmt grænlenska dagblaðinu Sermitsiaq sagði Marø: "Það er ergilegt að fólkið beri ekki virðingu fyrir lögreglu og stjórnmálamönnum. Þið væruð þó ekki til í að keyra mig heim?" þegar hann kom að máli við lögregluna rétt upp úr fjögur að morgni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×