Erlent

Leynigöng á Gaza fóðruð með sprengiefnum

Palestínskar öryggissveitir greindu frá því í dag að þær hefðu fundið yfirgripsmikil jarðgangakerfi á Gaza. Fatah-hreyfingin sagði að göngin hefði mátt nota til að nota til að myrða æðstu leiðtoga hreyfingarinnar, þeirra á meðal forseta Palestínu, Mahmoud Abbas. Hamas-hreyfingin vildi ekki segja hvort liðsmenn hennar hefðu grafið göngin.

Talsmaður Fatah, Abdel-Hakim Awad, sakaði Hamas um að hafa grafið göngin en gekk ekki svo langt að saka hreyfinguna um að leggja á ráðin um launmorð á stjórnmálamönnum Fatah. Hann sagði nokkur ganganna vera fóðruð með sprengiefnum og að þeir hlutar liggi beint undir heimili valdamikilla meðlima Fatah. Önnur göng liggja undir fjölfarinn veg milli Gaza og Ísraels, sem Abbas og Mohammad Dahlan, líklegur eftirmaður hans fara gjarna um.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×