Ferguson tjáir sig um vistaskipti Beckhams 12. janúar 2007 17:10
Sir Alex Ferguson segist hafa séð það fyrir að fyrrum leikmaður hans David Beckham færi til Bandaríkjanna eftir að hann féll úr náðinni hjá Real Madrid. Félagar hans á Spáni segjast muni sakna hans þegar hann heldur vestur um haf. "Ég sá það fyrir að Beckham færi til Bandaríkjanna eftir að halla tók undan fæti hjá Real. Ég veit líka að það var ekki freistandi fyrir hann að koma aftur til Englands, því þar er hann fyrst og fremst stuðningsmaður Manchester United eftir að hafa alist upp hjá félaginu og honum hefði eflaust fundist erfitt að spila með öðru liði hér. Allir toppleikmenn vilja spila og úr því að hann fékk ekki að spila hjá Real, kaus hann að fara til Ameríku," sagði Ferguson. Forseti Real Madrid, Ramon Calderon, lýsir Beckham sem sannkölluðum herramanni sem hafi alltaf gert sitt besta fyrir félagið og telur að ákvörðunin nú hafi verið bæði leikmanninum og félaginu til góða. Iker Casillas markvörður segist eiga eftir að sakna félaga síns þegar hann fer í sumar. "Það er súrt að hann sé að fara. Mér finnst ég heppinn að hafa fengið að kynnast honum, því hann er frábær persóna og fyrirmynd okkar allra," sagði Casillas. Adriano Galliani, yfirmaður AC Milan á Ítalíu, segir að félagið hefði klárlega gert David Beckham tilboð ef hann hefði ekki ákveðið að fara til Bandaríkjanna næsta sumar. Þá sagði Galliani að félagið ætlaði ekki að bjóða í framherjann Ronaldo hjá Real Madrid eins og slúðrað hefur verið um í marga mánuði. "Það var möguleiki á því að Beckham kæmi til Mílanó - okkur er óhætt að segja það núna úr því að framtíð hans er á hreinu. Ef hann hefði kosið að vera áfram í Evrópu, hefði hann klárlega komið til AC Milan," sagði Galliani.
Mest lesið Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Erlent Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Erlent Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Erlent „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Innlent Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Erlent Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann Innlent Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Innlent Fleiri fréttir Obama blæs Demókrötum í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi Hitamet falla og gróðureldar geisa í Evrópu og víðar Rússar myndu nota Donbas til að ráðast enn lengra inn í Úkraínu Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Sendir frá Norður-Kóreu í „þrældóm“ í Rússlandi Sjá meira