Erlent

Neyðarástand í Bangladesh

Forseti Bangladesh hefur lýst yfir neyðarástandi í landinu og sett á útgöngubann sem gilda skal fram að kjördegi, þann 22. janúar næstkomandi. Mikill pólitískur órói hefur verið í landinu þar sem stjórnarandstaðan sakar valdamenn um spillingu og áætlanir um kosningasvindl. Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið hættu í morgun við kosningaeftirlit sitt.

Að sögn samtakanna var brostinn grunnurinn fyrir því að lýðræðislegar kosningar gætu farið fram í landinu, vegna ofbeldis og óróa undanfarinna vikna.

Ef marka má tilkynningu forseta Bangladesh um útgöngubann fram að kosningum ætlar hann hins vegar að halda sínu striki og kosningarnar fara fram að óbreyttu eftir 11 daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×