Erlent

Shalit sagður við góða heilsu

Gilad Shalit var rænt í júní í fyrra en þetta er í fyrsta sinn sem greint er frá líðan hans.
Gilad Shalit var rænt í júní í fyrra en þetta er í fyrsta sinn sem greint er frá líðan hans. MYND/AP

Herskáu samtökin PRC í Palestínu, sem rændu ísraelska hermanninum Gilad Shalit í júní í fyrra, greindu frá því í dag að hann væri við góða heilsu og að þau væru reiðubúin að halda honum í mörg ár ef ekki yrði orðið við kröfum þeirra.

PRC fer fram á að þúsund palestínskum föngum verði sleppt úr ísraelskum fangelsum en því hafa Ísraelar hingað til hafnað. Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, hefur þó boðist til að sleppa mörgum palestínskum föngum gegn því að Shalit verði látinn laus og að mynduð verði þjóðstjórn í Palestínu sem viðurkenni tilverurétt Ísraelsríkis.

Þá greindi ísraelska dagblaðið Maariv frá því í fyrradag að Hamas-stamtökin hefðu afhent stjórnvöldum í Egyptlandi myndband af Shalit en að Ísraelar hafi neitað því að sleppa 250 palestínskum föngum í skiptum fyrir myndbandið. Þúsundum Palestínumanna er haldið í fangelsum í Ísrael af ótta við að þeir herji á Ísraelsríki ef þeir verði látnir lausir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×