Erlent

Blair ver einkaskólagöngu

Tony Blair, hefur varið þá ákvörðun fyrrverandi menntamálaráðherra síns að senda eitt af börnum sínum í einkaskóla. Ruth Kelly er nú ráðherra sveitarstjórnamála. Blair, sem sjálfur sendi sín börn í einkaskóla, sagðist styðja rétt foreldra til þess að ákveða í hvaða skóla þau fari.

Nokkrir félagar Ruth Kelly, í Verkamannaflokknum, hafa gagnrýnt hana fyrir að sýna ekki fordæmi með því að senda son sinn í ríkisrekinn skóla. Drengurinn fer í sérstakan heimavistarskóla fyrir börn með sérþarfir, en hann á erfitt með nám. Skólagjöld eru yfir tvær milljónir króna á ári.

David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, hefur einnig varið Ruth Kelly og sagt að það sé einkamál fjölskyldunnar hvernig þau hagi menntun barna sinna.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×