Erlent

Spænska lögreglan finnur 100 kíló af sprengiefni

Slökkviliðsmaður skoðar rústir bílastæðahúss á flugvellinum í Madríd þar sem sprengjan sprakk á laugardag.
Slökkviliðsmaður skoðar rústir bílastæðahúss á flugvellinum í Madríd þar sem sprengjan sprakk á laugardag. MYND/AP

Spænska lögreglan greindi frá því dag að hún hefði fundið 100 kíló af sprengiefni í baskneska bænum Atxondo. Telur hún að ETA, Aðskilnaðarhreyfing Baska, hafi átt sprengiefnið en það fannst í gámi í bænum. Spænsk stjórnvöld hafa slitið friðarviðræðum við ETA eftir að tveir létust í sprengjutilræði samtakanna á flugvellinum í Madríd á laugardaginn var.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×