Erlent

Hátt í sextíu látnir úr kulda í Bangladess

MYND/AP

Hátt í sextíu manns dáið úr kulda í norðurhluta Bangladess í vikunni, þar af um 40 í gær. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir yfirvöldum á svæðinu. Flestir hinna látnu eru betlarar og heimilislausir. Kuldakast hefur verið í landinu en hitinn hefur þó verið yfir frostmarki. Hins vegar er fátækt á svæðunum víða það mikil að íbúar geta illa varist kuldunum. Veðurfræðingar búast að kuldakastið vari í viku í viðbót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×