Erlent

Ahmadinejad segir Ísraelsríki munu falla

Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, réðst enn á ný gegn Ísraelsríki í ræðu sinni í dag og sagðist telja að það myndi brátt falla. Hann gengur þó ekki jafnlangt og hann hefur gert en hann hefur bæði hótað að þurrka Ísrael af kortinu og haldið því fram að helförin gegn gyðingum í seinni heimsstyrjöldinni sé uppspuni.

"Ég er þess handviss að við munum brátt sjá fall Síonistaveldisins," hafði opinber fréttastofa ríkisins IRNA eftir forsetanum í dag.

"Helförin var spunnin upp af Vesturveldunum í því augnamiði að ná markmiðum þeirra," sagði hann í síðasta mánuði og bætti við: "rétt eins og Sovétríkin voru þurrkuð út og eru ekki til í dag, þannig verður Síonistaveldið einnig þurrkað út."

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×