Erlent

Fundu annað fórnarlamb ETA

Börgunarmenn á flugvellinum í Madríd fundu nú undir kvöld lík annars mannanna sem létust í kraftmikilli bílsprengingu ETA á laugardag. Lík mannsins fannst í rústum á bílastæðinu þar sem sprengjan sprakk. Mennirnir voru báðir ekvadorskir innflytjendur. Þeir eru fyrstu mennirnir sem látast í hryðjuverkum ETA í rúm þrjú ár.

Lík hins mannsins er einnig grafið undir þúsundum tonna af steinsteypu þar sem margra hæða bílastæðahús hrundi í sprengingunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×