Brown yngir upp í bresku stjórninni 29. júní 2007 05:00 Fyrsti fundur nýrrar stjórnar Gordon Brown, í miðju, stýrir fyrsta fundi hinnar nýju ríkisstjórnar í embættisbústað sínum að Downingstræti 10 í gær. MYND/AP
Gordon Brown, nýr forsætisráðherra Bretlands, valdi ungt og upprennandi fólk í nokkur helstu ráðherraembætti ríkisstjórnar sinnar sem hann kynnti í gær. Hinn 41 árs gamli David Miliband tekur við embætti utanríkisráðherra, en hann er rísandi stjarna í Verkamannaflokknum og hefur á liðnum misserum haft uppi efasemdir um utanríkisstefnu Tonys Blair. Miliband, sem flytur úr ráðuneyti umhverfismála, sagðist styðja utanríkisstefnu sem væri „þolinmóð en jafnframt árangursmiðuð". En það eru líka nokkrar gamalreyndar kempur í nýju stjórninni. Þannig skipaði Brown Alistair Darling eftirmann sinn í fjármálaráðuneytinu, en Darling var iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Hann er einnig Skoti eins og Brown. Þá verður Jack Straw dómsmálaráðherra. Brown heimilaði aðstandendum hermanna sem fallið hafa í Írak og Afganistan að vera meðal áheyrenda í Downingstræti 10 þegar hann flutti fyrstu ræðu sína eftir að hann tók við völdum á miðvikudaginn. Hann hyggst ennfremur aflétta ströngum hömlum sem settar voru við mótmælaaðgerðum við þinghúsið í Lundúnum. Jacqui Smith innanríkisráðherra og David Miliband utanríkisráðherra mæta á ríkisstjórnarfundinn í gær.MYND/AP John Denham, sem sagði sig úr stjórn Blairs í mótmælaskyni við Íraksstríðið, snýr nú aftur sem ráðherra nýsköpunar- og háskólamála. Annar þekktur gagnrýnandi Íraksstríðsins, Mark Malloch-Brown, fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og harður andstæðingur utanríkisstefnu Bandaríkjastjórnar, verður einnig í stjórninni, að vísu í einu hinna veigaminni ráðherraembætta - Afríku-, Asíu- og SÞ-mála - en með skipun slíkra manna í stjórnina er Brown að gefa ótvíræð skilaboð um áherslubreytingu frá valdatíð Blairs. Brown skipaði hina 44 ára gömlu Jacqui Smith í hið áhrifamikla embætti innanríkisráðherra og er hún fyrsta konan í breskri stjórnmálasögu sem gegnir því. Brown hefur líka boðið fulltrúum úr stjórnarandstöðuflokkunum stöður í stjórnarliðinu. Þannig verður Shaun Woodward, þingmaður Íhaldsflokksins sem var reyndar á sínum tíma kjörin á þing fyrir Verkamannaflokkinn en skipti um flokk árið 1999, ráðherra Norður-Írlandsmála. Í breskum fjölmiðlum hefur einnig verið fullyrt að Chris Patten, þingmaður Íhaldsflokksins sem var síðasti héraðsstjóri Breta í Hong Kong, og Shirley Williams, sem situr í lávarðadeildinni fyrir frjálslynda demókrata, yrðu boðnar stjórnarstöður. Alls eru ellefu manns sem sátu í stjórn Blairs - að Blair sjálfum og John Prescott varaforsætisráðherra meðtöldum - ekki í stjórn Browns.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Sjá meira