Erlent

Sleppur við nauðgunardóm

Moshe Katsav
Moshe Katsav

Moshe Katsav, forseti Ísraels, samþykkti í gær að segja af sér, gegn því að hann yrði ekki dreginn fyrir dóm fyrir kynferðisafbrot eftir árslanga rannsókn.

Forsetinn slapp við ákæru fyrir nauðgun, en játaði á sig kynferðislega áreitni og að hindra framgang réttvísinnar. Hann mun ekki þurfa að afplána fangelsisvist, en segir af sér sem forseti. Sjö ára kjörtímabili hans hefði lokið í næsta mánuði.

Katsav hefur beðið mikinn álitshnekki vegna málsins og sagði saksóknari að ímynd hans hefði breyst úr sameiningartákni í ógnvekjandi yfirmann sem misnotar kvenkyns starfsmenn sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×