Erlent

Hermaður játaði á sig morð

Bandarískur landgönguliði sem skaut 10 byssukúlum í gamlan, íraskan mann og dró hann út úr húsi sínu um miðja nótt játaði í kvöld á sig morð og aðrar ákærur á hendur honum. Atvikið átti sér stað í apríl 2006 í Hamdania í Írak. Fórnarlambið var nágranni manns sem hermenn ætluðu að ná vegna gruns um hryðjuverk.

Dómsmálið er ekki það eina undanfarna mánuði og ár þar sem bandarískir hermenn svara til saka fyrir ólögleg ofbeldisverk í stríðinu í Írak.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×