Fótbolti

Belgar og Hollendingar sækja um HM 2018

Englendingar vilja halda HM 2018
Englendingar vilja halda HM 2018 NordicPhotos/GettyImages

Belgar og Hollendingar hafa nú lagt fram formlegt tilboð um að halda HM í knattspyrnu árið 2018. Þjóðirnar héldu EM árið 2000 með ágætum árangri en þær munu keppa við fjölda þjóða um að fá keppnina eftir 11 ár.

Englendingar lögðu fram formlegt tilboð um að halda keppnina í síðasta mánuði, en auk þeirra hafa Kínverjar, Rússar, Ástralar, Mexíkóar, Spánverjar og Bandaríkjamenn lýst yfir áhuga á að bjóða í verkefnið.

Ekki verður tilkynnt um hvaða land fær að halda þessa keppni fyrr en 2011.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×