Samantekt: Knattspyrnumenn sem látast fyrir aldur fram Aron Örn Þórarinsson skrifar 28. ágúst 2007 17:10 Leikmenn Frakklands og Kamerún minnast hér Marc-Vivien Foe eftir úrslitaleik liðanna í álfukeppninni árið 2003. Frakkland vann leikinn 1-0. NordicPhotos/GettyImages
Tíðindi um að hinn 22 ára gamli Antonio Puerta hafi látið lífið í dag, eftir að hafa fengið hjartáfall í miðjum leik Sevilla og Getafé um helgina hefur skilið knattspyrnuheiminn eftir í uppnámi. Andlát Puerta er þó ekki það fyrsta síns eðlis. Eftirfarandi er samantekt af atvikum þar sem leikmenn láta lífið í þessari vinsælustu íþrótt heims. Á gúst 1989 - Nígeríski landsliðsmaðurinn, Samuel Okwaraji, lést í landsleik gegn Angólu í undankeppni Heimsmeistaramótsins. Þegar tíu mínútur lifðu af leiknum féll Okwaraji til jarðar og lést vegna hjartabilunar. September 1990 - Framherjinn Dave Longhurst hjá Cork City, féll til jarðar í leik gegn Lincoln City tveimur mínútum fyrir hálfleik. Leikurinn var flautaður af og Longhurst úrskurðaður látinn af völdum sjaldgæfs hjartasjúkdóms. Longhurst var 25 ára gamall. Október 2002 - Brasilíski framherjinn Marcio Dos Santos lést aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hann skoraði sigurmark fyrir lið sitt, Deportivo Wanka. Dos Santos var 28 ára og lést af völdum hjartaáfalls. Júní 2003 - Eitt hræðilegasta atvik knattspyrnusögunnar átti sér stað í álfukeppninni þegar kamerúnski landsliðsmaðurinn Marc-Vivien Foe féll til jarðar í leik gegn Kólumbíu. Foe hljóp á miðjulínu vallarins þegar hann datt niður og var borinn af velli. Hann lést skömmu síðar. Leikurinn var sýndur í beinni útsendingu um allan heim, þar á meðal á Íslandi. Júlí 2003 - Tvítugur Brasilíumaður, Maximiliano Patrick, lætur lífið á sjúkrahúsi eftir að hafa liðið illa á æfingu með liði sínu, Botafogo-Ribeirao Preto. Janúar 2004 - Ungverski landsliðsmaðurinn Miklos Fehrer lætur lífið af völdum hjartaáfalls í miðjum leik Benfica og og Vitoria Guimaraes. Fehrer var 24 ára gamall. Júní 2005 - Hugo Cunha, miðjumaður portúgalska liðsins Uniao Leiria, lætur lífið þegar hann spilaði fótbolta við vini sína. Cunha var 28 ára gamall. Ágúst 2007 - Antonio Puerta fær hjartaáfall í fyrsta leik Sevilla á tímabilinu gegn Getafé. Puerta stóð upp skömmu síðar eftir að hafa fengið læknisaðstoð og gekk til búningsklefa þar sem aftur leið yfir hann og hann var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést þremur dögum síðar. Puerta var 22 ára gamall og átti von á barni með unnustu sinni.
Fótbolti Mest lesið Markmaður Noregs forðast að fara í búðina eftir heimsmeistaramótið Fótbolti Nýr leikmaður Arsenal á skotskónum í sínum fyrsta leik Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Golf Fimmtán ára ungstirni spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir Manchester United Fótbolti Segir Richarlison vera tvístigandi hvort hann vilji vera áfram Fótbolti Dagskráin í dag: Víkingur mætir Skaganum og Opna breska klárast Sport „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Enski boltinn Real Madrid missti niður tveggja marka forskot gegn Alberti og félögum Fótbolti „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Nýr leikmaður Arsenal á skotskónum í sínum fyrsta leik Markmaður Noregs forðast að fara í búðina eftir heimsmeistaramótið Segir Richarlison vera tvístigandi hvort hann vilji vera áfram Leicester náði ekki að vinna Mikael Egil og félaga Ánægður að fá Mudryk til baka Fimmtán ára ungstirni spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir Manchester United Lið Tómasar Bents tapaði eftir dramatískar lokamínútur Real Madrid missti niður tveggja marka forskot gegn Alberti og félögum Íslendingaslagur endaði jafn í Danmörku Rúnar og þrír leikmenn missa af leiknum við KR Rúnar fékk rautt: „Örstutt bræðiskast“ Chelsea staðfestir komu Danny Welbeck Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn Enn skorar Emelía „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ „Rangur maður til að leiða þessi samtök“ „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ UEFA lýsir yfir vantrausti gagnvart Infantino Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Vinícius á förum? JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn „Verður skrýtið að sjá hann standa hinu megin“ Infantino hættir við allt saman Casemiro mættur til að hjálpa „guði fótboltans“ að vinna Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Arnór Gauti fékk sínar fyrstu mínútur í Króatíu „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Heiðdís hjálpar Söru Björk og félögum í Haukum Eru of fáar konur að starfa fyrir karlalið í knattspyrnu? Sjá meira