Slúðrið á Englandi í dag 19. júní 2007 12:54 AFP
Ensku slúðurblöðin eru full af góðum fréttum í dag eins og endranær og þar er m.a. að finna slúður um enska landsliðsmanninn Darren Bent hjá Charlton og að Chelsea og Arsenal séu að berjast um leikmann Valencia. Þá er sagt frá því að ensku landsliðsmennirnir sem giftu sig um helgina hafi allir tekið hlé frá hátíðarhöldunum til að sinna ákveðnu máli. Chelsea og Arsenal eru að berjast um að fá til sín varnarmanninn Miguel frá Valencia en verðmiðinn á honum er sagður um 13 milljónir punda - Daily Telegraph. Sex félög í úrvalsdeildinni eru sögð á höttunum eftir Royston Drenthe hjá Feyenoord að mati Independent, en blaðið segir Sunderland og West Ham þar fremst í flokki. Gareth Southgate er tilbúinn að lofa Alan Smith hjá Manchester United föstu sæti í byrjunarliði Middlesbrough ef hann fæst til að skipta um félag - Daily Star. Darren Bent hefur tilkynnt Liverpool og Tottenham að hann muni ganga til liðs við það félag sem gefi honum betri möguleika á að vinna sér sæti í enska landsliðinu - Daily Mirror. West Ham er komið í baráttuna um framherjann David Nugent hjá Preston að mati The Sun. Þá hefur West Ham fengið þvert nei frá Blackburn í viðleitni sinni til að kaupa framherjann Benni McCarthy frá Blackburn - The Sun. Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, vill ólmur fá til sín framherjann Fredi Kanoute frá Sevilla þar sem Kanu er í viðræðum við Ajax í Hollandi - The Sun. Chelsea er sagt vilja gera samning við Kóreumanninn Lee Chun-Soo vegna þeirra gríðarlegu fjárhæða sem eru í boði vegna styrktarsamninga við leikmanninn í Suður-Kóreu - The Sun. Danski miðjumaðurinn Thomas Gravesen er við það að ganga í raðir Sheffield United fyrir 3 milljónir punda - Ýmsir. West Ham hefur neitað 3 milljón punda kauptilboði Birmingham í framherjann Marlon Harewood og hefur Steve Bruce verið tilkynnt að hann þurfi að borga 4,5 milljónir fyrir hann - Daily Express. Eigendur Liverpool hafa lofað Rafa Benitez meiri peningum til að eyða til leikmannakaupa í sumar í kjölfar frétta af ólgu í herbúðum félagsins - Daily Mirror. Khalid Boulahrouz hjá Chelsea hefur verið orðaður við Sevilla á Spáni - Ýmsir. Barcelona hefur í huga að bjóða Arsene Wenger að taka við þjálfun liðsins vegna þess að Frank Rijkaard er að hugsa um að hætta eftir að liðið vann ekki spænska titilinn í vetur - The Sun. Alexei Lalas, framkvæmdastjóri LA Galaxy, segir að David Beckham verði stærra nafn í Bandaríkjunum en Tiger Woods og Michael Jordan eftir að hann gengur í raðir LA Galaxy - Daily Mirror. David Beckham missti af hátíðarathöfn sem haldin var vegna meistaratitils Real Madrid því hann kaus að fljúga strax í sumarfrí með fjölskyldu sinni - Daily Star. Þeir John Terry, Gary Neville og Steven Gerrard ákváðu allir að taka sér hlé frá brúðkaupsáformum sínum um helgina til að senda félaga sínum David Beckham heillaóskir eftir að Real hampaði titlinum á Spáni - The Sun.
Enski boltinn Mest lesið Utan vallar: Karl, trans eða einfaldlega kona? Sport Birna fékk skelfilegar fréttir og þarf að hætta Körfubolti Skandall í krullu og ljót orð látin falla Sport „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Enski boltinn Sló 30 ára gamalt Íslandsmet Sport KSÍ dregur úr verðhækkunum Íslenski boltinn Vann troðslukeppnina með látum Körfubolti Mark dæmt af Orra á Bernabéu Fótbolti Grátlegt hjá Íslendingaliðinu Fótbolti Of seinn til að sjást í mynd: „Þetta er bara á allt of lágu plani“ Körfubolti Fleiri fréttir Hristu hausinn yfir ævintýralegum klúðrum „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Þjálfari fær níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara „Tottenham er ekki stór klúbbur“ Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Nottingham Forest rak stjórann í þriðja sinn á leiktíðinni Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Sjá meira