Innlent

Mikill verðmunur á leikföngum

Dúkkuhúsin kostuðu um 8000 í Hagkaup.
Dúkkuhúsin kostuðu um 8000 í Hagkaup.
Áttatíu og fjögurra prósenta verðmunur er á vinsælu dúkkuhúsi, eftir því hvar það er keypt, samkvæmt athugun Neytendasamtakanna. Þau kosta 6,500 krónur í Leifsstöð, en 12 þúsund krónur í Dótakassanum á Akureyri, eins og kemur fram í 24 stundum. Verðið er um átta þúsund í Hagkaupum og Leikbæ, en húsin voru uppseld hjá Toys R Us. Í fljótu bragði virðist verðið endurspegla meiri samkeppni í leikfangaverslun á suðvesturhorninu en á Akureyri.-



Fleiri fréttir

Sjá meira


×