Innlent

Stefnir í uppsagnarferli hjá grunnskólakennurum

Formaður Félags grunnskólakennara segir margt benda til að það stefni í uppsagnir hjá kennurum, ef ekki semst fljótlega um kjarabætur þeim til handa. Kennarar vilja sex til sjö prósentustiga hækkun launa, en sveitarfélögin bjóða tvö prósent.

Í gildandi kjarasamningi grunnskólakennara er endurskoðunarákvæði sem kveður á um að launaforsendur samningsins skuli skoðaðar í september 2006. Síðan þá hafa litlar viðræður átt sér stað. En í fréttum okkar í hádeginu greindi formaður sambands íslenskra sveitarfélaga frá því, að kennurum hefði verið boðin tveggja prósentra hækkun. Hún tæki gildi í áföngum um síðustu áramót og þau næstu, með því skilyrði að samningurinn yrði framlengdur fram á vorið 2008. Þetta dugar kennurum ekki.

"Nei, það gerir það auðvitað ekki. Þessi tvö prósent eru líka boðin þannig að 1,25 af þeim eru til þess að framlengja samningnum frá næstu áramótum. Þannig að það sem þeir hafa boðið okkur til að mæta þeirri efnahags- og kjaraþróun sem verið hefur frá nóvember 2004 til septembers 2006 er 0,75%," segir Ólafur Loftsson formaður Félags grunnskólakennara.

"Það er auðvitað reynt að gæta allrar sanngirni og horfa til þróunar á almennum launamarkaði. Þetta er auðvitað samkomulagsatriði. Þetta er umdeilanlegt. En það er verið að tala um viðmiðanir við aðra samninga. Þannig að það er mat launanefndarinnar að með þessu sé komið til móts við kennara," segir Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Kennarar telja boltann vera hjá sveitarfélögunum. Launavísitala opinberra starfsmanna hafi hækkað um 10 prósent á samningstímanum og því telji kennarar 6- 7 prósent nær lægi til leiðréttingar hjá þeim.

Ólafur Loftsson segir ómögulegt að segja hvort uppsagnarferli fari af stað hjá kennurum eins og oft áður.

"En auðvitað er margt sem bendir til þess. Það er mjög þungt hljóð í fólki. Menn hafa bæði heyrt það og séð. Við höfum ályktanir og þessa mótmælastöðu um daginn og auðvitað eru kennarar ekki sáttir. Við skulum ekki gleyma því að menn voru þvingaðir í þennan kjarasamning á sínum tíma eftir lög frá Alþingi og það voru 51% kennara sem samþykktu þennan samning," segir formaður Félags grunnskólakennara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×