Stefnir í uppsagnarferli hjá grunnskólakennurum 17. febrúar 2007 18:42
Formaður Félags grunnskólakennara segir margt benda til að það stefni í uppsagnir hjá kennurum, ef ekki semst fljótlega um kjarabætur þeim til handa. Kennarar vilja sex til sjö prósentustiga hækkun launa, en sveitarfélögin bjóða tvö prósent. Í gildandi kjarasamningi grunnskólakennara er endurskoðunarákvæði sem kveður á um að launaforsendur samningsins skuli skoðaðar í september 2006. Síðan þá hafa litlar viðræður átt sér stað. En í fréttum okkar í hádeginu greindi formaður sambands íslenskra sveitarfélaga frá því, að kennurum hefði verið boðin tveggja prósentra hækkun. Hún tæki gildi í áföngum um síðustu áramót og þau næstu, með því skilyrði að samningurinn yrði framlengdur fram á vorið 2008. Þetta dugar kennurum ekki. "Nei, það gerir það auðvitað ekki. Þessi tvö prósent eru líka boðin þannig að 1,25 af þeim eru til þess að framlengja samningnum frá næstu áramótum. Þannig að það sem þeir hafa boðið okkur til að mæta þeirri efnahags- og kjaraþróun sem verið hefur frá nóvember 2004 til septembers 2006 er 0,75%," segir Ólafur Loftsson formaður Félags grunnskólakennara. "Það er auðvitað reynt að gæta allrar sanngirni og horfa til þróunar á almennum launamarkaði. Þetta er auðvitað samkomulagsatriði. Þetta er umdeilanlegt. En það er verið að tala um viðmiðanir við aðra samninga. Þannig að það er mat launanefndarinnar að með þessu sé komið til móts við kennara," segir Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Kennarar telja boltann vera hjá sveitarfélögunum. Launavísitala opinberra starfsmanna hafi hækkað um 10 prósent á samningstímanum og því telji kennarar 6- 7 prósent nær lægi til leiðréttingar hjá þeim. Ólafur Loftsson segir ómögulegt að segja hvort uppsagnarferli fari af stað hjá kennurum eins og oft áður. "En auðvitað er margt sem bendir til þess. Það er mjög þungt hljóð í fólki. Menn hafa bæði heyrt það og séð. Við höfum ályktanir og þessa mótmælastöðu um daginn og auðvitað eru kennarar ekki sáttir. Við skulum ekki gleyma því að menn voru þvingaðir í þennan kjarasamning á sínum tíma eftir lög frá Alþingi og það voru 51% kennara sem samþykktu þennan samning," segir formaður Félags grunnskólakennara.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Sjá meira