Grikkir sækja bætur vegna eldanna 30. ágúst 2007 11:58 Fólk bíður í röð til að sækja 3000 evru greiðslu í bætur vegna eldanna sem hafa geysað í landinu undanfarna daga. MYND/Reuters
Þúsundir Grikkja streymdu í banka í landinu í gær til að sækja bætur frá ríkisstjórninni vegna eldanna sem hafa geysað þar í landi undanfarna daga. Allir Grikkir geta fengið bætur, sýni þeir skilríki og skrifi undir yfirlýsingu um að þeir hafi orðið fyrir tjóni vegna eldanna. Í gær afhentu bankar meira en 24 milljónir evra í bætur, og vonast stjórnvöld til að það sýni að þau séu fær um að bregðast við hörmungunum. Margir segja að að þær séu þær verstu sem landið hefur orðið fyrir frá því Tyrkneski herinn réðst inn á Pelopskaga þegar Grikkir börðust fyrir sjálfstæði frá Ottoman veldinu árið 1825. Stjórnvöld segja að farið verði yfir bótakröfurnar seinna, en gagnrýnendur segja að framkvæmd bótagreiðslanna bjóði heim hættu á því að fólk svíki út úr sjóðunum. Grísk stjórnvöld hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir að bregðast seint og illa við eldunum. Fleiri en tíu þúsund manns söfnuðust saman fyrir utan þinghúsið í Aþenu í gær til að mótmæla vegna eldanna, sem 64 hafa látist í undanfarna sex daga. Mótmælendur báru skilti sem fordæmdu brennuvargana. Flest bendir til að eldarnir hafa kviknað af mannavöldum. Sex hafa verið kærðir fyrir íkveikjur, en sjaldgæft er að fólk sé dæmt fyrir þær. Þeir sem tekist hefur að sakfella hafa yfirleitt kveikt í til að hefna sín á nágrönnum, svindla á tryggingum eða hreinsa landsvæði til beitar. 275 þúsund hektarar lands hafa brunnið í eldum í Grikklandi frá því um áramót og fleiri en fimm hundruð heimili gjöreyðilagst.
Mest lesið Skotin með gúmmíkúlu í beinni frá mótmælunum Erlent Ísraelsher stöðvaði skútuna og handtók áhöfnina Erlent Sannfærð um sakleysi eiginmannsins og segir hann hetjuna sína Erlent Konan er fundin Innlent Íslendingur á válista CIA árið 1970 Innlent Newsom ætlar að kæra Trump Erlent „Erum ekki að lýsa yfir stuðningi við Trump“ Innlent Mjög áhyggjufull yfir tilfærslu ráðuneytisins Innlent Tveir sjúkrabílar kallaðir út vegna bílslyss við Mjódd Innlent Ekki hægt að nota rafræn skilríki Innlent Fleiri fréttir Newsom ætlar að kæra Trump Sannfærð um sakleysi eiginmannsins og segir hann hetjuna sína Skotin með gúmmíkúlu í beinni frá mótmælunum Ísraelsher stöðvaði skútuna og handtók áhöfnina Telja Ísraelsher hafa umkringt bát Thunberg Forsetaframbjóðandi skotinn í höfuðið Grafalvarlegt ástand í LA: „Þetta eru einhverjar fasískar leikaðferðir“ Rannsökuðu eigin samsæriskenningar um fljúgandi furðuhluti Ísraelsmenn undirbúi árás á skútuna með Gretu Thunberg um borð Hótar Musk alvarlegum afleiðingum styðji hann Demókrata Trump sendir þjóðvarðlið til Los Angeles Danskar herþotur verða staðsettar á Grænlandi Tók 12 ár að breyta reglum um bætur vegna seinkun flugferða Grófu látin og særð börn upp úr rústum Wagner yfirgefur Malí í skugga mikilla árása Mótmæli og átök eftir áhlaup ICE í Los Angeles Aftur logar eldur í Læradal Deilurnar halda áfram og Musk boðar „Ameríkuflokkinn“ Stærsta árásin á Kharkív hingað til Var fluttur óvart úr landi en er snúinn aftur Engin sátt í sjónmáli: Trump vill selja Tesluna Klóra sér í kollinum yfir stórri reikistjörnu á braut um litla stjörnu Reyna að stilla til friðar með símtali Dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir að nauðga tugum skjólstæðinga Bras á breska Umbótaflokknum þrátt fyrir velgengnina Brotlentu öðru einkafari á tunglinu Fyrirsjáanlegar deilur: Valdamesti maður heims og sá ríkasti hnakkrífast Eldar loguðu í Kænugarði eftir umfangsmiklar árásir Rússa Segir nafn Trumps vera í Epstein-skjölunum Trump segist „mjög vonsvikinn“ út í Elon og ekki viss um að þeir geti átt gott samband Sjá meira