Fimm ára gamall maraþonhlaupari pyntaður Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. ágúst 2007 14:31 Budhia hefur lagt fleiri kílómetra að baki sér en flestir jafnaldrar hans. Mynd/ AFP
Biranchi Das þjálfari hins fimm ára gamla indverska maraþonhlaupara Budhia Singh hefur verið ákærður fyrir að misþyrma drengnum. Das var handtekinn eftir að móðir drengsins tilkynnti að hún hefði fundið ör á syni hennar. Das neitar þessum ásökunum. Budhia komst í heimsmetabækur í fyrra eftir að hafa gengið 65 kílómetra stanslaust á rúmlega sjö klukkustundum. Hann byrjaði að hlaupa 3 ára gamall. Budhia sagði í samtali við fjölmiðla að Das hefði refsað sér með því að halda sér lokuðum inni í herbergi án matar í tvo daga. Hann sagði jafnframt að Das hefði slegið sig með heitu járni og sýndi áverka á höndunum sem studdu frásögn hans. Das heldur fram sakleysi sínu og fullyrðir að móðir drengsins sé að reyna að koma á sig sök. Móðirin heldur því fram að Das lemji Budhia reglulega og hafi eitt sinn bundið hann við girðingu og hellt heitu vatni yfir líkama hans. Das segir að Budhia sé honum sem sonur og þvertekur fyrir þessar ásakanir. Í maí síðastliðnum komu barnaverndaryfirvöld í Orissa, heimahéraði Budhias, í veg fyrir að hann gengi 100 kílómetra um Austur-Indland í steikjandi hita. Þau fordæma þátttöku hans í maraþongöngum og segja að hann sé beittur pyntingum.
Mest lesið Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni Innlent Sammála því að erfitt haust sé í vændum Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Fleiri fréttir Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna aðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Sjá meira