Erlent

Þremur suður-kóreskum gíslum sleppt

Jón Hákon Halldórsson skrifar

Talíbanir hafa látið lausar þrjá suður-kóreskar konur úr hópi nítján gísla sem teknir voru fyrir rúmum mánuði. Stjórnvöld í Suður-Kóreu greindu frá því í gær að þau hefðu náð samkomulagi við Talíbani um lausn gíslanna. Suður-Kóreumenn hafa heitið því að kalla heim herlið sitt í Afganistan fyrir lok ársins, hætta trúboði í landinu og hindra suður-kóreska borgara í að ferðast þar. Grunur leikur á að lausnargjald hafi verið greitt en það hefur ekki fengist staðfest.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×