Sýrlendingar og Ísraelar voru nærri samkomulagi 17. janúar 2007 02:15 Gólanhæðir eru enn bitbein Ísraels og Sýrlands. Ísraelar hertóku hæðirnar árið 1967 og Sýrlendingar vilja fá þær aftur. MYND/AP
Fulltrúar frá Ísrael og Sýrlandi höfðu í nærri tvö ár stundað samningaviðræður með leynd og voru komnir með drög að friðarsamkomulagi þegar Líbanonstríðið braust út síðastliðið sumar. Frá þessu skýrði ísraelska dagblaðið Haaretz í gær. Samkvæmt frásögn blaðsins höfðu samningamennirnir náð samkomulagi um að Ísraelsher færi alfarið frá Gólanhæðum, sem Ísrael hertók frá Sýrlandi árið 1967, en í staðinn myndu sýrlensk stjórnvöld hætta öllum stuðningi við herskáa hópa Palestínumanna. Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, segir þó að viðræðurnar hafi ekki verið á vegum ísraelskra stjórnvalda heldur alfarið verið einkaframtak einstaklinga. Starfsmaður utanríkisráðuneytisins í Sýrlandi segir fréttir af slíkum viðræðum tilhæfulausar með öllu. Hins vegar staðfesti talsmaður ísraelsku stjórnarinnar, sem vildi ekki láta nafns síns getið, að ísraelskir ráðamenn hefðu vitað af þessum viðræðum þótt ekki hefðu þær verið á vegum stjórnvalda. Dagblaðið heldur því fram að bæði ísraelsk og sýrlensk stjórnvöld hafi vitað af viðræðunum, sem haldnar voru í nokkur skipti í Evrópu á árunum 2004 til 2006. Bashar Assad Sýrlandsforseti hefur nýverið látið í ljós vilja til að halda áfram friðarviðræðum við Ísrael. Olmert hefur hins vegar sagt að ekki komi til greina að hefja viðræður fyrr en Sýrlendingar hafi hætt stuðningi við herskáa andstæðinga Ísraels. Bandaríkjastjórn hefur einnig hafnað því að hefja viðræður við Sýrlendinga en sakar þá um að aðstoða baráttu súnní-múslima í Írak gegn bæði sjíum og bandaríska herliðinu þar. Síðast í gær féllu að minnsta kosti 65 manns í árásum á sjía-hverfi í Bagdad í Írak. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur verið á ferð um Mið-Austurlönd að afla fylgis ráðamanna þar við nýja stefnu Bandaríkjastjórnar í Írak. Leiðtogar sumra arabaríkja hafa sagst reiðubúnir að aðstoða Bandaríkin við að stilla til friðar í Írak gegn því að Bandaríkin leggi sig meira fram við að finna lausn á deilu Ísraela og Palestínumanna. Í gær hitti hún Saud al-Faisal prins í Sádi-Arabíu, sem sagðist ekki hafa mikla trú á að árangur næðist í Írak.
Mest lesið Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Erlent „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Innlent Tölvuárás á Grund: Afrituðu gögn um tugi þúsunda manns Innlent Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Innlent Ný samræmd próf lögð fyrir Innlent WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Erlent Kjartan er kominn heim til Íslands Innlent Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Erlent Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Innlent Fleiri fréttir Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri „Því sterkari sem við erum, því raunhæfari verður friður“ Tekur við formannsembættinu í skugga Epstein-tengsla Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Mildari tónn en sama innihaldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektarkennd og skömm“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Spyrja sig hvort Evrópa geti treyst Bandaríkjamönnum Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Mótmæla banni gegn grænkera „pylsum“ og „hamborgurum“ Gróðurhúsalofttegundir ekki lengur skaðlegar samkvæmt Trump Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins ICE dregur saman seglin í Minneapolis Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Greiða atkvæði um hámarksfjölda Svisslendinga Jagland ákærður fyrir spillingu Sprengdu blöðrur með herleysigeisla áður en lofthelginni var lokað Táningsdóttir Kims formlegur arftaki hans Pútín þjarmar að vinsælasta samfélagsmiðli Rússlands Íhugar að senda annað flugmóðurskip til Mið-Austurlanda Efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um þak á íbúafjölda landsins Gallup hættir að mæla ánægju með Bandaríkjaforseta eftir níutíu ára samfellda sögu Fulltrúadeildin samþykkir að fella niður tolla Trump gegn Kanada Leita fórnarlamba fransks barnaníðings sem braut á börnum um allan heim Talin hafa myrt móður sína og stjúpbróður fyrir skotárásina „Þjóðin syrgir með ykkur“ Leitarheimild byggði á löngu afsönnuðum ásökunum um svindl Sjá meira