Erdogan vill boða til kosninga 2. maí 2007 12:39
Forsætisráðherra Tyrklands hefur farið þess á leit við þing landsins að boðað verði til kosninga fyrr en áætlað er. Hann vill einnig breyta stjórnarskrá Tyrklands þannig að forseti verði valinn af almenningi með beinni kosningu en ekki af þingi. Það var úr vöndu að ráða fyrir Tayyip Erdogan, forsætisráðherra, í gær þegar stjórnlagadómstóll ógilti atkvæðagreiðslu þings í síðustu viku um næsta forseta landsins. Eini frambjóðandinn, Abdullah Gul, utanríkisráðherra og flokksbróðir Erdogans, hlaut ekki næg atkvæði og því þurfti að greiða aftur atkvæði í þessari viku. Stjórnarandstaðan var andvíg valinu og skaut málinu til dómstólsins sem úrskurðaði í gær. Áhyggur stjórnarandstæðinga og margra annarra Tyrkja voru þær að með valinu á Gul, sem er afar trúaður múslimi líkt og flokksbræður hans, yrðu skil milli stjórnmála og trúarbragða í landinu óljósari. Stjórnmálaskýrendur sögðu að miðað við úrskurðinn hefði Erdogan tvo kosti. Hann gæti skipt Gul út fyrir annað forsetaefni eða boðað til kosninga, líkt og stjórnarandstaðan gerði kröfu um. Erdogan tilkynnti síðan í gærkvöldi að hann hefði óskað eftir stuðningi þings við ákvörðun sína um að boða til kosninga í lok júní. Hann sagði úrskurð stjórnlagadómstólsins árás á lýðræðið og nú teldi hann mikilvægt að breyta stjórnarskrá landsins þannig að Tyrkir fengju að velja forseta beinni kosningu. Deilurnar um valið á Gul hafa svipt hulunni af djúpstæðum klofningi í Tyrknesku þjóðfélagi, milli strangtrúaðra og þeirra sem vilja halda trú og stjórnmálum aðskildum.
Mest lesið „Unglingadrykkjan virðist vera orðin norm“ Innlent „Tesla er ekki málið til að standa í svona“ Innlent Trump gerir aðför að stjórn Seðlabankans Erlent „Ég segi bara að þögn er sama og samþykki“ Innlent Örlög Bayrou ráðast 8. september Erlent Skjálfti við Húsavík Innlent „Nokkur fjöldi“ ísjaka 16 kílómetrum frá Tröllaskaga Innlent „Ég er fimmtíu kíló, ég get ekki stoppað hann“ Innlent „Hann var hræddur, eiginlega alveg skíthræddur“ Innlent „Það er sú aðgerð sem mun hraðast slá á þetta misræmi“ Innlent Fleiri fréttir Ástralir vísa sendiherra Íran úr landi og loka sendiráðinu í Tehran Trump gerir aðför að stjórn Seðlabankans Örlög Bayrou ráðast 8. september Vörpuðu sprengjum á sjúkrahús með 15 mínútna millibili Vilja nú senda El Salvador fangann til Úganda Habeck hættir á þingi Hótar að senda herinn til Baltimore El Mayo sagður ætla að játa sekt Tíunda skotið klikkaði Yfirmaður heraflans er á móti hernámi og vill semja Persónulegar og átakanlegar lýsingar í ævisögu Giuffre Þýska velferðarríkið standi ekki lengur undir sér Á sjöunda tug drepin í stórtækum árásum Ríkisstjóri Illinois sakar Trump um valdníðslu Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Sjá meira