Næstráðendur Saddams hengdir 16. janúar 2007 01:15 Myndbandsupptöku af aftökunni verður ekki dreift og er einungis ætluð til sönnunar að sögn al-Dabbagh. Fréttamönnum var sýnd upptakan í gær. mynd/afp
Hálfbróðir Saddams Hussein og fyrrverandi yfirmaður leyniþjónustu Íraks, Barzan Ibrahim, og fyrrverandi yfirdómari í Írak, Awad Hamed al-Bandar voru teknir af lífi með hengingu fyrir dögun í gær. Eftir aftökurnar greindi talsmaður stjórnvalda frá því að höfuð Ibrahims hefði losnað frá líkamanum við henginguna í því sem hann kallaði „sjaldgæft slys“. Rúmar tvær vikur eru síðan Saddam Hussein var tekinn af lífi í umdeildri aftöku sem hefur verið gagnrýnd víða. Myndbandsupptökur af aftökunni sýna hvernig viðstaddir hæddu Hussein þar sem hann stóð með snöruna um hálsinn. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að aftaka Saddams hefði átt að vera framkvæmd með reisn og vonaði hún að þeir sem hefðu séð um framkvæmd hennar yrðu dregnir til ábyrgðar. Hún minntist ekkert á aftökur Ibrahims og al-Bandar. Engar reglur voru brotnar við framkvæmd aftökunnar í gær að sögn talsmanns stjórnvalda, Ali al-Dabbagh. „Enginn hrópaði slagorð eða sagði neitt sem setti blett á aftökuna. Hvorugur hinna ákærðu var móðgaður.“ Ibrahim og al-Bandar voru ásamt Saddam sakfelldir fyrir morð á 148 sjíamúslímum árið 1982.
Mest lesið Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Erlent „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Innlent Tölvuárás á Grund: Afrituðu gögn um tugi þúsunda manns Innlent Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Innlent Ný samræmd próf lögð fyrir Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Erlent Kjartan er kominn heim til Íslands Innlent WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild Innlent Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri Erlent Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Erlent Fleiri fréttir Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri „Því sterkari sem við erum, því raunhæfari verður friður“ Tekur við formannsembættinu í skugga Epstein-tengsla Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Mildari tónn en sama innihaldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektarkennd og skömm“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Spyrja sig hvort Evrópa geti treyst Bandaríkjamönnum Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Mótmæla banni gegn grænkera „pylsum“ og „hamborgurum“ Gróðurhúsalofttegundir ekki lengur skaðlegar samkvæmt Trump Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins ICE dregur saman seglin í Minneapolis Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Greiða atkvæði um hámarksfjölda Svisslendinga Jagland ákærður fyrir spillingu Sprengdu blöðrur með herleysigeisla áður en lofthelginni var lokað Táningsdóttir Kims formlegur arftaki hans Pútín þjarmar að vinsælasta samfélagsmiðli Rússlands Íhugar að senda annað flugmóðurskip til Mið-Austurlanda Efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um þak á íbúafjölda landsins Gallup hættir að mæla ánægju með Bandaríkjaforseta eftir níutíu ára samfellda sögu Fulltrúadeildin samþykkir að fella niður tolla Trump gegn Kanada Leita fórnarlamba fransks barnaníðings sem braut á börnum um allan heim Talin hafa myrt móður sína og stjúpbróður fyrir skotárásina „Þjóðin syrgir með ykkur“ Leitarheimild byggði á löngu afsönnuðum ásökunum um svindl Sjá meira