Erlent

Sprenging á skrifstofum Al Arabiya á Gasa

Spreningin á skrifstofum Al Arabiy var nokkuð öflug.
Spreningin á skrifstofum Al Arabiy var nokkuð öflug. MYND/AP
Sprenging varð á skrifstofum arabísku sjónvarpsstöðvarinnar Al Arabiya á Gasaströndinnni í gær. Töluvert tjón varð á innanstokksmunum en enginn var í húsinu þegar sprengingin varð. Ekki liggur fyrir hvað olli sprengingunni en aðalfréttastjóri stöðvarinnar í Dubai greindi frá því að stöðin hefði áður fengið hótanir.

Þá segja vitni að enginn starfsmaður hafi mætt í vinnu á stöðinni í nokkra daga vegna nafnlausra hótana eftir að stöðin hafði sýnt ávarp frá Ismail Haniyeh, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar. Auk skemmda á húsakynnum Al Arabiya skemmdist hurðin að skrifstofum Reuters-fréttastofunnar á Gasa.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×