Erlent

Einn af leiðtogum íslamista gaf sig fram

Sharif Sheik Ahmed er í gæsluvarðhaldi í Naírobí.
Sharif Sheik Ahmed er í gæsluvarðhaldi í Naírobí. MYND/AP
Einn af leiðtogum andspyrnuhreyfingarinnar Íslamska dómstólaráðsins, Sharif Sheik Ahmed, sem réði lögum og lofum í stórum hluta Sómalíu í hálft ár, hefur gefið sig fram við kenísk stjórnvöld í Naírobí. Hann segist hafa verið hræddur um líf sitt á flótta undan eþíópískum hermönnum og hafi því gefið sig fram.



Hann er nú í gæsluvarðhaldi á stóru hóteli í Naírobí samkvæmt kenískum embættismanne en bandaríska sendiráðið, sem hefur hann í umsjá sinni, vill ekki staðfesta þetta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×