Eyjólfur Sverrisson íhugar ekki að segja af sér 6. júní 2007 21:20 AFP "
Þetta er gríðarlega svekkjandi og við töpuðum leiknum á 11 mínútum þar sem við fáum á okkur fjögur mörk og svo óskemmtilegt mark þarna í lokin. Strákarnir eru virkilega niðurlútir og miður sín," sagði Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari í viðtali á Sýn eftir stórtap íslenska liðsins fyrir Svíum ytra. Hörður Magnússon spurði Eyjólf hvað hefði átt sér stað í vörn íslenska liðsins þegar Svíarnir skoruðu fimmta markið (hægt er að sjá myndband af markinu hér á Vísi). "Þeir heyrðu flaut og sáu dómarann benda eitthvað og gáfu bara frá sér boltann. Svíarnir virtust ekki alveg átta sig á þessu heldur, en þetta mark var kannski lýsandi fyrir þessar mínútur í lok fyrri hálfleiks og í upphafi þess síðari. Fyrir utan það áttum við ágætis spretti og fengum tvö færi sem hefðu geta dottið okkar megin - en okkur var refsað illilega. Það var mikið einbeitingarleysi hjá strákunum og við fengum á okkur tvö mörk úr hornum sem er hlutur sem á ekki að gerast. Ungu strákarnir voru reyndar að standa sig nokkuð vel og átu ágætisleik. Það er ekkert út á það að setja og ég treysti þeim alveg. Það voru ellefu mínútur og tvö horn sem gerðu út um þennan leik.," sagði Eyjólfur. Hann var spurður að því hvort hann íhugaði að segja af sér eftir tapið í kvöld. "Nei, ég geri það ekki. Það er mikið verk eftir. Þetta er okkar níundi leikur og þetta er bara eins og undirbúingstímabil. Við erum enn að prófa okkur áfram og reyna að finna réttu blönduna í þetta. Það er mikil endurnýjun í liðinu og ég tel mig eiga eftir mikið verk," sagði Eyjólfur og var að lokum spurður hvort hann teldi sig eiga möguleika á að snúa gengi liðsins til betri vegar í næstu leikjum. "Ekki spurning," svaraði landsliðsþjálfarinn í samtali við Hörð Magnússon á Sýn í kvöld.
Mest lesið Kane sleppur með sekt og spilar á morgun Körfubolti Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Körfubolti Skilaboð um forsetann fjarlægð úr stúkunni Fótbolti Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Enski boltinn McIlroy klár þrátt fyrir sársauka Golf Elías bikarmeistari í Danmörku Fótbolti Stefnir á að slá heimsmetið aftur í september Sport Úrslitaleiknum gæti verið frestað vegna njósnamálsins Enski boltinn Dagskráin í dag: Njarðvík getur tryggt titilinn og PGA meistaramótið hefst Sport Fleiri fréttir Skilaboð um forsetann fjarlægð úr stúkunni „Ég tek fulla ábyrgð“ „FH er bara á sinni vegferð“ Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Elías bikarmeistari í Danmörku Úrslitaleiknum gæti verið frestað vegna njósnamálsins Ægir sló KA út og bikarmeistararnir flengdir Glódís bikarmeistari annað árið í röð Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki Trúir ekki öðru en að hann verði áfram Benóný stýrði fögnuðinum Strákarnir læri af biturri reynslu Arnars með Davíð Oddssyni í Japan Sjáðu Foden stela senunni í sigri City „Eins og súpa sem vantar salt og pipar“ „Þú þarft raunverulega að þjást“ „Mann fyrir mann eigum við að vinna þá“ Benóný Breki fer á Wembley ÍA vann Grindavík í vítakeppni eftir mikla dramatík Uppgjörið: Stjarnan - KR 2-1 | Stjarnan náði fram hefndum Umdeilt víti gefur Celtic séns á titlinum en jafntefli dugir Tómasi og félögum Afturelding skoraði fimm mörk og flaug áfram með Víkingum Safonov hetjan er PSG tryggði titilinn í toppslag Inter er bikarmeistari Ítalíu „Tímapunkturinn hefði ekki getað verið mikið verri“ City fagnaði gríðarmikilvægum sigri gegn Palace Birta mynd af „njósnara“ Southampton „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Þróttur R. - Breiðablik 1-2 | Tíu Blikar tryggðu sig í átta liða úrslitin „Það var bara eins og kóngurinn væri mættur í bæinn“ Sjá meira