Ætluðu að nota íslenska flugvél til að ræna börnum frá Afríku Þórir Guðmundsson skrifar 29. október 2007 11:51
Nota átti íslenska flugvél til að flytja fleiri en eitt hundrað börn ólöglega frá Afríkuríkinu Tsjad. Yfirvöld í landinu komu í veg fyrir flutningana og óvissa ríkir nú um afdrif barnanna, Evrópubúanna sem reyndu að fara með þau og flugvélarinnar, sem situr nú á flugvelli í Tsjad. Íslenska flugvélin, TF-LLZ, situr á flugvelli í Abeche í Tsjad. Þetta er Boeing 757 200, sem þjónaði til farþegaflugs til og frá Íslandi en Loftleiðir yfirtóku í fyrra. Hún er í langtímaleigu til Spánar, til 2009, á svokölluðum þurrleigusamningi og því er áhöfnin sem nú situr í gæslu lögreglu í Tsjad spænsk en ekki íslensk. Loftleiðamenn eru í stöðugu sambandi við spænska flugfélagið og spænsk yfirvöld eru að reyna að semja um að áhöfnin fái að fljúga burt með vélina. Stjórnvöld í Frakklandi segjast sömuleiðis munu gæta hagsmuna Frakkanna níu sem reyndu að smygla börnunum úr landi. Rama Yade mannréttindaráðherra Frakklands segir að tilraunin til að flytja börnin til Frakklands hafi verið ólögleg og óábyrg og að frönsk stjórnvöld hafi reynt að vara samtökin við því að gera þetta. B örnin eru á munaðarleysingjahæli í Tsjad, þar sem Rauði krossinn sér um þau. Forseti Tsjad heimsótti börnin í gær og sakaði frönsku samtökin sem ætluðu að ræna þeim um að hafa ætlað að selja þau barnaníðingum. Sjálf hafa börnin sagt að Frakkarnir hafi gefið þeim sælgæti og lokkað þau frá heimilum þeirra á landamærum Tsjad og Darfúr héraðs í Súdan. Frakkarnir segjast hafa verið að koma munaðarleysingjum frá hinu stríðshrjáða Darfúr héraði til fjölskyldna í Evrópu - en miðað við framburð barnanna þá voru að minnsta kosti sum þeirra hvorki munaðarlaus né frá Darfúr.
Mest lesið Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Erlent Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Erlent Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Erlent „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Innlent Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Erlent Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Innlent Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Innlent Fleiri fréttir Obama blæs Demókrötum í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi Hitamet falla og gróðureldar geisa í Evrópu og víðar Rússar myndu nota Donbas til að ráðast enn lengra inn í Úkraínu Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Sendir frá Norður-Kóreu í „þrældóm“ í Rússlandi Sjá meira