Erlent

Mælir með góðu mataræði

George W. Bush
George W. Bush

George W. Bush Bandaríkjaforseti þakkaði líkamsrækt góða heilsu sína og mælti með hjólreiðum í viðtali á CBS-sjónvarpsstöðinni í gær.

„Ég trúi því varla hversu sprækur ég er,“ sagði forsetinn. „Ég æfi mikið, því að það er gott fyrir andann og gott fyrir sálina.“

Forsetinn sagði mikilvægt að hugsa vel um hvað maður lætur ofan í sig. „Slæmt mataræði orsakast af því hvað við borðum,“ sagði forsetinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×