Innlent

Kræklingur mælir mengun í sjó

Kræklingur verður ræktaður í búrum í grennd við fyrirhugað álver í Helguvík til að fylgjast með áhrifum mengunar frá verinu á lífríki hafsins.

Magn þungmálma í mjúkvef kræklingsins verður mælt, auk þess sem öðrum aðferðum verður beitt við vöktun sjávar.

Þá mun dýralæknir skoða hross sem eru á beit sumarlangt á afgirtum túnum við hesthús Hestamanna­félagsins Mána áður en rekstur álversins hefst. Gefi flúor­mælingar í gróðri á beitarsvæðum tilefni til að ætla að hrossin gætu orðið fyrir flúor­skaða verður ummerkja þess leitað á tönnum dýranna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×