Blair kvaddur með lófataki og tárum 28. júní 2007 06:00 Tony Blair fyrir utan forsætisráðherrabústaðinn í Downings-stræti 10 þar sem hann hefur búið ásamt fjölskyldu sinni undanfarinn áratug.
Nýr forsætisráðherra Bretlands, Gordon Brown, lofaði breytingum og nýrri forgangsröðun þegar hann tók við embætti í gær úr hendi Tonys Blair, sem hefur verið forsætisráðherra undanfarinn áratug meðan Brown hefur setið í fjármálaráðuneytinu. Síðar um daginn barst tilkynning frá Kvartettinum svokallaða, sem Sameinuðu þjóðirnar, Evrópusambandið, Bandaríkin og Rússland mynda, um að Blair hefði verið skipaður formlegur erindreki Kvartettsins í friðarumleitunum á milli Ísraels- og Palestínumanna. Blair var augljóslega hrærður þegar hann stóð í síðasta sinn fyrir svörum í fyrirspurnatíma forsætisráðherra í breska þinginu í gærmorgun. Í fyrirspurnatímanum sagðist Blair harma að breskir hermenn stæðu andspænis háska í Írak og Afganistan en baðst ekki afsökunar á ákvörðun sinni um að styðja hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna. Lokaorð Blair voru: „Ég óska öllum, vinum sem andstæðingum, hins besta. Og þannig er það. Endir.“ Þingheimur klappaði ákaft fyrir Blair og sumir felldu tár þegar hann yfirgaf þingsalinn til að halda til fundar við Elísabetu II Bretadrottningu sem hann afhenti afsagnarbréf sitt. Forseti Bandaríkjanna, George W. Bush, sagði Blair hafa átt farsælan feril og að sagan myndi dæma hann mildilega. Í ummælum sem breska götublaðið The Sun birti í gær sagði Bush: „Ég hef heyrt að hann sé kallaður kjölturakki Bush. Hann er stærri en það.“ Talið er að Bush hafi átt veigamikinn þátt í að tryggja Blair stöðuna hjá Kvartettinum. Afsögn Blairs bindur enda á samstarf sem spannar tæplega aldarfjórðung og hófst þegar hann og Brown voru kjörnir á þing árið 1983. Hinir ungu þingmenn deildu bæði skrifstofu og hugsjón um að hafa áhrif á örlög flokks síns. Það hefur verið umtalað, en aldrei sannað, að félagarnir tveir hafi gert með sér samkomulag yfir kvöldverði árið 1994 þar sem Brown hét að bjóða sig ekki fram gegn Blair í leiðtogahlutverk Verkamannaflokksins eftir að þáverandi leiðtogi, John Smith, lést. Á móti á Blair að hafa heitið því að veita Brown víðtæk völd sem fjármálaráðherra og að víkja sem leiðtogi fyrir Brown eftir tiltekinn tíma.
Mest lesið Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent „Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“ Fréttir Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Erlent Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Erlent Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Erlent Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Erlent Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Innlent Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Erlent Íslendingar óska eftir aðstoð Innlent Gerir stólpagrín að Von der Leyen Erlent Fleiri fréttir Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Sjá meira