10 verstu leikmannakaup í sögu úrvalsdeildarinnar 13. júní 2007 21:45 Juan Veron fagnar marki fyrir Manchester United AFP
Breska blaðið Sun birtir í dag lista sinn yfir 10 verstu leikmannakaup í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Listinn er nokkuð áhugaverður og gaman að sjá hvernig nokkrir af færustu knattspyrnustjórum Englands hafa keypt köttinn í sekknum.Massimo Taibi - Manchester United Ítalski markvörðurinn Taibi var keyptur til United frá Venezia fyrir 4,4 milljónir punda til að fylla skarð Peter Schmeichel. Hann spilaði hinsvegar aðeins fjóra leiki fyrir liðið og þótti afleitur markvörður. Hans er helst minnst fyrir markið sem hann fékk á sig gegn Matt Le Tissier þar sem boltinn rann í gegn um klofið á honum. Eftir það var hann kallaður "Blindi Feneyingurinn." Taibi spilar enn á Ítalíu og leikur með Torino. Roque Junior - Leeds Junior kom til Leeds eftir að hafa orðið heimsmeistari með Brasilíumönnum og átti heldur betur að stoppa upp í vörn Leeds-manna. Hann var fenginn til liðsins á lánssamningi til eins árs og fékk 1,2 milljónir punda fyrir að vera aðeins fimm sinnum í byrjunarliði liðsins. Hann spilar nú með Bayern Leverkusen og á fyrirtæki sem hannar föt á börn. Per Kroldrup - Everton Daninn Kroldrup var í miklu uppáhaldi hjá David Moyes knattspyrnustjóra Everton en byrjaði aðeins einn leik fyrir liðið, sem var 4-0 tap fyrir Aston Villa. Kroldrup spilaði aðeins 147 mínútur í úrvalsdeildinni og kostaði Everton því 13,600 pund á mínútu. Hann var síðar seldur til Fiorentina aðeins hálfu ári eftir komu sína til Englands. Marcelino - Newcastle Þessi spænski varnarmaður var keyptur til liðsins fyrir 5,8 milljónir punda frá Mallorca og hafði staðið sig vel gegn bestu framherjum Spánar. Ruud Gullit var stjóri Newcastle á þeim tíma og skildu stuðningsmenn liðsins aldrei hvað Gullit sá við leikmanninn. Hann féll svo endanlega úr náðinni hjá liðinu þegar hann neitaði að spila í margar vikur vegna fingurbrots. Winston Bogarde - Chelsea Bogarde átti ótrúlegan feril hjá Chelsea þar sem hann fékk fjögurra ára samning og 40,000 pund í vikulaun. Hann byrjaði afleitlega með liðinu og náði sér aldrei á strik eftir það. Chelsea gerði allt sem það gat til að losa sig við leikmanninn, en hann neitaði einfaldlega að fara frá félaginu. Bogarde hafði áður leikið með Milan, Ajax og Barcelona. Hann sætti sig við það skrítna hlutskipti að æfa með unglingaliði félagsins eftir að hafa verið settur út í kuldann - en hann gaf sig ekki og kláraði samninginn. Hann lagði síðar skóna á hilluna sem ríkur maður - og gaf út bók um allt saman sem er hinn skemmtilegasti lestur. Juan Sebastian Veron - Manchester United Manchester United greiddi Lazio 28 milljónir punda fyrir miðjumanninn snjalla frá Argentínu á sínum tíma og það var ekki lítil upphæð á þeim tíma. Miklar vonir voru bundnar við Veron á Englandi en hann náði aldrei að aðlagast knattspyrnunni þar í landi.Kleberson - Manchester United Kleberson er dæmi um annan Brasilíumann sem ekki náði að sanna sig í enska boltanum eftir að hafa unnið heimsmeistarakeppnina með landsliði sínu. Kleberson átti í rauninni að vera eftirmaður Veron hjá United þegar hann gekk í raðir liðsins fyrir 6 milljónir punda, en líkt og félaga hans Eric Djemba-Djemba - var för þeirra frá félaginu fagnað meira en komu þeirra.Ali Dia - Southampton Dia var fenginn til Southampton af Graeme Souness þegar hann var knattspyrnustjóri liðsins og eru þessi kaup einhver þau fáránlegustu í sögu úrvalsdeildarinnar. Svikahrappur taldi Souness trú um að Dia væri landsliðsmaður Senegal og frábær knattspyrnumaður, en fljótlega kom í ljós að það var haugalygi. Dia kom inn sem varamaður í leik gegn Leeds, en var svo arfaslakur að honum var síðar skipt af velli í sama leik. Hann fékk strax að taka pokann sinn og spilaði síðast fyrir lið Gateshead í utandeildinni. Tomas Brolin - Leeds Sænska stjarnan Brolin gerði fína hluti með landsliði Svía og Parma á Ítalíu og Leeds keypti hann á sínum tíma fyrir 4,5 milljónir punda. Fljótlega kom þó í ljós að Brolin hafði skilið allt sitt eftir á Ítalíu og gerði lítið annað en að bæta á sig kílóum á Englandi. Hann fór fljótlega frá Leeds og gerðist sölumaður með varahluti í ryksugur eftir að ferli hans sem knattspyrnumaður lauk.Marco Boogers - West Ham Boogers var keyptur til West Ham frá Sparta Rotterdam fyrir 1 milljón punda á sínum tíma og var rekinn af velli fyrir ljóta tæklingu á Gary Neville í aðeins sínum öðrum leik á Englandi. Hann týndist síðar og fannst síðar í hjólhýsagarði í Hollandi þar sem hann hafði fengið taugaáfall. Harry Redknapp viðurkenndi síðar að hann hefði keypt leikmanninn eftir það eitt að hafa séð myndbandsspólu með honum. Leikmaðurinn, með þetta skemmtilega nafn, náði sér síðar á strik og fór aftur að spila á fullu í heimalandinu. Alberto Luque - Newcastle Enn ein skrautfjöðurin í hatt Graeme Souness. Þessi spænski markaskorari átti að verða bjargvættur Newcastle þegar hann gekk í raðir liðsins fyrir hvorki meira né minna en 9,5 milljónir punda fyrir tveimur árum. Stuðningsmenn Newcastle urðu þó fljótt þreyttir á sífelldum meiðslum hans og væli og var hann síðast sem lánsmaður hjá PSV Eindhoven í Hollandi. Luque skoraði aðeins tvö mörk fyrir Newcastle.
Enski boltinn Mest lesið Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Lengri heimferð bíður KR-inga og Egill kallar eftir Akraborginni Íslenski boltinn Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Enski boltinn Það verða tónleikar í hálfleik á úrslitum HM félagsliða Sport Messi slær enn eitt metið Fótbolti „Við erum klárlega að fara í alvöru slagsmál“ Íslenski boltinn Konate gæti farið frítt frá Liverpool Sport Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Enski boltinn Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Enski boltinn HM félagsliða „farsælasta keppni í heimi“ samkvæmt Infantino Sport Fleiri fréttir Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Arsenal eflir miðjuna enn frekar Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Segir Arsenal vera að fá til sín „heila framtíðarinnar“ Óvissan tekur við hjá Hákoni Þrennubikar Man. United geymdur á Anfield Oasis tileinkaði Diogo Jota lag á fyrstu tónleikunum í sextán ár Umboðsmaður með Íslandstengingu sakaður um að nauðga konu í sex ár Taka tíuna af Rashford og segja honum að vera lengur í sumarfríi Slot um Jota: Vinur allra og átti draumasumar sem gerir þetta enn sorglegra Michael Edwards og Richard Hughes senda frá sér yfirlýsingu vegna Jota Allt sem við vitum um banaslys Diogo Jota Yfirlýsing frá Liverpool: „Ólýsanlegur missir“ Borgaði bara ungmennaliðinu laun og nú má allt aðalliðið fara frítt Sjá meira