Slúðrið á Englandi í dag 14. júní 2007 16:56 Kaup ársins á Englandi á síðustu leiktíð - Framherjinn Dimitar Berbatov hjá Tottenham NordicPhotos/GettyImages
Breska slúðurpressan hefur oft nokkuð fyrir sér í glæfralegri umfjöllun sinni um leikmannamarkaðinn í enska boltanum. Nokkrar af slúðursögum blaðanna í morgun hafa þannig orðið að veruleika nú síðdegis, en þar með er ekki öll sagan sögð. Daily Mail segir þannig að framherjinn Kanu hjá Portsmouth muni gera tveggja ára samning við Ajax í Hollandi. The Sun segir að Chelsea muni kaupa framherjann Marco Pantelic frá Hertha Berlin fyrir 2,5 milljónir punda. Daily Mirror segir að Manchester United sé að fara að bjóða 10 milljónir punda í framherjann Fabio Quagliarella hjá Sampdoria. Nokkur blaðanna halda því fram að framherjinn Jermain Defoe verði seldur frá Tottenham í sumar ef hann neitar að skrifa undir nýjan þriggja ára samning sem liggur á borðinu fyrir hann. The Times segir að West Ham sé tilbúið að selja Fulham framherjann Marlon Harewood ef félagið er tilbúið að hækka 3 milljón punda tilboð sitt um 750,000 pund. Þá segir Times að Portsmouth hafi blandað sér í baráttu við Everton og Sunderland um að landa framherjanum David Nugent frá Preston. Daily Mirror hefur eftir portúgalska miðjumanninum Deco hjá Baracelona að hann sé feginn að David Beckham sé farinn frá erkifjendunum í Real Madrid, því hann sé enn klárlega einn besti leikmaður heims í sinni stöðu. Nokkur blaðanna hafa eftir Jose Mourinho hjá Chelsea að hann hafi engar áhyggjur af því þó keppinautar hans í Manchester United séu að eyða 50 milljónum punda í leikmenn í sumar. The Sun segir að Roman Abramovich ætli að reyna að bæta liðsandann hjá Chelsea með því að mæta í brúðkaupsveislu fyrirliðans John Terry um helgina, en sagt er að Jose Mourinho verði ekki á meðal boðsgesta. Loks var framherjinn Dimitar Berbatov útnefndur "kaup ársins" af sérstakri rannsóknarnefnd í ensku úrvalsdeildinni þar sem tekið var mið af sérstakri formúlu. Í sömu rannsókn var Andriy Shevchenko dæmdur "lélegustu kaup ársins." - Daily Express greindi frá þessu.
Enski boltinn Mest lesið Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Bakgarðsáskorun: Stefnir hátt í síðasta Bakgarðshlaupinu sínu Sport Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Mun skilja sál mína eftir í búrinu“ Sport Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira