Hryðjuverkaógnin snýr aftur 30. júní 2007 03:00 Götunum í kringum Heymarket og Piccadilly Circus var lokað vegna rannsóknarinnar. fréttablaðið/ap
Lögregla aftengdi í gær sprengju sem komið hafði verið fyrir í bíl í mannmörgu leikhúshverfi Lundúnaborgar, sem gæti hafa drepið hundruð manna. Sprengjan fannst þegar áhöfn sjúkrabíls sá reyk koma úr Mercedes Benz-bifreið, sem í ljós kom að var fyllt með banvænni blöndu af bensíni, própangasi og nöglum, að því er lögregluyfirvöld greindu frá. Sprengjan, sem fannst í bíl sem lagt hafði verið við Heymarket nærri Piccadilly Circus, var að sögn Peters Clarke, yfirmanns bresku hryðjuverkavarnalögreglunnar, nægilega öflug til að valda „verulegu manntjóni“, jafnvel dauða hundruða manna. Uppgötvunin vakti upp minningar um hryðjuverkasprengingarnar í borginni 7. júlí 2005, sem urðu 52 manns að bana um borð í þremur neðanjarðarlestum og strætisvagni, og svipaða árás sem koma tókst í veg fyrir tveimur vikum síðar. „Við stöndum nú frammi fyrir alvarlegri og stöðugri ógn við öryggi okkar frá alþjóðlegri hryðjuverkastarfsemi,“ sagði Jacqui Smith, nýr innanríkisráðherra Bretlands, eftir fund með æðstu mönnum almannavarna í landinu. Ítarleg rannsókn á málinu stendur yfir en engar viðvaranir eða leyniþjónustuvísbendingar kváðu hafa komið fram fyrirfram um að tilræði af þessu tagi kynni að vera yfirvofandi.
Mest lesið Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent „Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“ Fréttir Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Erlent Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Erlent Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Erlent Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Erlent Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Innlent Íslendingar óska eftir aðstoð Innlent Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Erlent Gerir stólpagrín að Von der Leyen Erlent Fleiri fréttir Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Sjá meira