Erlent

Einsflokksstjórn tryggð áfram

Hu Jintao
Hu Jintao

Kína þarf að taka á spillingu og útdeila auði á sanngjarnari hátt en pólitískar umbætur munu fara stigvaxandi en aðeins undir stjórn eins-flokks-veldis Kommúnistaflokksins. Þetta er meðal þess sem kom fram í ræðu forseta Kína, Hu Jintao, um framtíðarsýn sína fyrir forystu kínverska Kommúnistaflokksins.

Hu sagði að flokkurinn þyrfti að ná markmiðinu um að koma á „í grundvallaratriðum vel settu þjóðfélagi“ fyrir árið 2020 sem hefur verið eitt meginstefið í fimm ára valdatíð hans.

Hu kom aðeins lítillega inn á aukið pólitískt frjálsræði þegar hann hvatti til aukinnar þátttöku fólks um leið og einsflokksstjórn yrði tryggð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×