Erlent

Brown yngir upp í bresku stjórninni

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar Gordon Brown, í miðju, stýrir fyrsta fundi hinnar nýju ríkisstjórnar í embættisbústað sínum að Downingstræti 10 í gær.
Fyrsti fundur nýrrar stjórnar Gordon Brown, í miðju, stýrir fyrsta fundi hinnar nýju ríkisstjórnar í embættisbústað sínum að Downingstræti 10 í gær. MYND/AP

Gordon Brown, nýr forsætisráðherra Bretlands, valdi ungt og upprennandi fólk í nokkur helstu ráðherraembætti ríkisstjórnar sinnar sem hann kynnti í gær. Hinn 41 árs gamli David Miliband tekur við embætti utanríkisráðherra, en hann er rísandi stjarna í Verkamannaflokknum og hefur á liðnum misserum haft uppi efasemdir um utanríkisstefnu Tonys Blair.

Miliband, sem flytur úr ráðuneyti umhverfismála, sagðist styðja utanríkisstefnu sem væri „þolinmóð en jafnframt árangursmiðuð".

En það eru líka nokkrar gamalreyndar kempur í nýju stjórninni. Þannig skipaði Brown Alistair Darling eftirmann sinn í fjármálaráðuneytinu, en Darling var iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Hann er einnig Skoti eins og Brown. Þá verður Jack Straw dómsmálaráðherra.

Brown heimilaði aðstandendum hermanna sem fallið hafa í Írak og Afganistan að vera meðal áheyrenda í Downingstræti 10 þegar hann flutti fyrstu ræðu sína eftir að hann tók við völdum á miðvikudaginn. Hann hyggst ennfremur aflétta ströngum hömlum sem settar voru við mótmælaaðgerðum við þinghúsið í Lundúnum.

 

Jacqui Smith innanríkisráðherra og David Miliband utanríkisráðherra mæta á ríkisstjórnarfundinn í gær.MYND/AP

John Denham, sem sagði sig úr stjórn Blairs í mótmælaskyni við Íraksstríðið, snýr nú aftur sem ráðherra nýsköpunar- og háskólamála. Annar þekktur gagnrýnandi Íraksstríðsins, Mark Malloch-Brown, fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og harður andstæðingur utanríkisstefnu Bandaríkjastjórnar, verður einnig í stjórninni, að vísu í einu hinna veigaminni ráðherraembætta - Afríku-, Asíu- og SÞ-mála - en með skipun slíkra manna í stjórnina er Brown að gefa ótvíræð skilaboð um áherslubreytingu frá valdatíð Blairs.

Brown skipaði hina 44 ára gömlu Jacqui Smith í hið áhrifamikla embætti innanríkisráðherra og er hún fyrsta konan í breskri stjórnmálasögu sem gegnir því.

Brown hefur líka boðið fulltrúum úr stjórnarandstöðuflokkunum stöður í stjórnarliðinu. Þannig verður Shaun Woodward, þingmaður Íhaldsflokksins sem var reyndar á sínum tíma kjörin á þing fyrir Verkamannaflokkinn en skipti um flokk árið 1999, ráðherra Norður-Írlandsmála. Í breskum fjölmiðlum hefur einnig verið fullyrt að Chris Patten, þingmaður Íhaldsflokksins sem var síðasti héraðsstjóri Breta í Hong Kong, og Shirley Williams, sem situr í lávarðadeildinni fyrir frjálslynda demókrata, yrðu boðnar stjórnarstöður.

Alls eru ellefu manns sem sátu í stjórn Blairs - að Blair sjálfum og John Prescott varaforsætisráðherra meðtöldum - ekki í stjórn Browns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×